ljósið kemur
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 120139
Gagnlegt
myndir
29.09.2010 20:19:42 / gudnyb

...matarmenning....

hvernig er hægt að vera inn í einni af stærstu matarbúð höfuðborgarinnar og langa ekki í neitt sem þar er til........... en langa samt í eitthvað gott ??:|

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2010 19:33:32 / gudnyb

á hjarta

það mætti halda að manni liggi ekkert á hjarta miðað við blogg frammistöðuna hér, en það er ekki rétt. .... :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2010 20:45:20 / gudnyb

...von

.. í dag hef ég heimsótt marga perueigendur (sjá orðabók ljóssins) og það er alltaf jafn gaman... baðað og bætt á mjólk úr staupi... mjólkin var ekki alveg komin og litla greyið orðið svangt... já lífsþorstinn sjálfur bankar upp á og líffræðilega er móðirin ekki tilbúin til að svala þorstanum hjá ungbarninu... já það þarf að brúa bilið og það er gaman.... 
...... í minni þjónustu eru foreldrar frá Afríku.... óvenju mikið brosandi foreldrar sem eru svo óendanlega þakklát öllu sem fyrir þau er gert.... ég átti gott samtal við föðurinn í dag þar sem ég spurði hvers vegna fólk í hans heimsálfu sem á ekkert sem við köllum lífsnauðsynjar getur verið svona brosandi og glatt... börnin leika sér, syngja og dansa þó þau eigi ekki einu sinni bæli til að sofa í.... hvers vegna er fólkið svona glatt spurði ég... og hann svarað; .... jú sjáðu... við trúum á Guð ... við eigum von... og við lifum í þeim anda að dagurinn á morgun verði betri en dagurinn í dag...... þetta er ótrúlega einföld og merkileg  lífsspeki.........   umhugsunarverð pæling :lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2010 18:14:03 / gudnyb

mamma

...í dag 6.mars hefði móðir mín (Þórlaug M. Símonardóttir) orðið 101 árs...já eins og frú Sigríður sem nýlega var í kastljósminu... hún mamma var dama síns tíma, alltaf með fléttuhárgreiðsluna sína og dags daglega var hún í morgunkjól eins og kallað var í þá daga. Bar yfirleitt svuntu sem var með smekk og krossbönd á baki. Þannig klædd gekk hún til sinna verka, vaknaði yfirleitt snemma og gekk seint til náða. Hún hafði í mörgu að snúast yfir daginn. Verk hennar voru fyrst og fremst hefðbundin heimilisstörf innandyra þ.e. matargerð, þrif, þvottur, viðgerð á fötum og uppeldi bana ásamt umönnun annarra sem á heimilinu dvöldu. Alltaf var allt í föstum skorðum, matur og kaffi á réttum tíma, bakkelsi borið á borð og maturinn tilbúinn þegar útivinnandi heimilisfólk kom í bæinn. Þegar gesti bar að garði var alltaf nóg pláss og aldrei man ég eftir að einhver yrði frá að hverfa sem leitaði eftir gistingu.Hún hafði þægilegt fas, var frekar lágvaxin laus við allt prjál. Þegar hún bjó sig upp fór hún í upphlut eða peysuföt. Hún var kvenfélagskona og hafði ánægju af því. Einnig söng hún í kirkjukórnum og var mjög trúuð þó hún hafi ekki alltaf verið með guðsorð á vörum. Lífsafstaða hennar var þannig að hún kenndi samferðafólki bera virðingu fyrir lífinu. Trúa á hið góða sem býr í hverjum manni og okkur bæri skylda að gæta nágunga okkar. ... takk fyrir að vera mamma mín...
Blessuð sé minning þín

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2010 22:12:01 / gudnyb

endurkoma.... það er spurning?

hvernig væri að byrja aftur að blogga á gömlum slóðum:!:...er búin að fletta í gegnum þetta bull sem hér hefur verið skrifað og sé að þar eru ýmsar pælingar... í lífi miðaldra dömu  á lífsins slóð ... alla vega virðist heilaleikfimin sem hún stundaði um tíma í skólanum á Sæmundargötu 6 hafa haft áhrif á skriftargleðina á blogginu.... :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 00:00:43 / gudnyb

LayLow ....Lóa

...ég fór að hitta LayLow í dag....við vorum í nokkurskonar aðlögun að hvor annarri...og þegar ég kom að sækja hana heyrði ég að ræktunarkonan kallaði Lóa, Lóa, komdu !! og það var auðvitað strax ákveðið að Lóa skyldi hún kölluð.... þó ræktunarkonan segði að ég gæti kallað hana það sem mig langaði....en þar sem ég þekki góða konu með þessu nafni þótti mér alveg tilvalið að hún fengi nöfnu hjá vinkonu sinni..... þannig að Lóa vinkona mín á  orðið ferfætta nöfnu...........

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 10:22:27 / gudnyb

...óvissuferð

...hvernig stendur á því að ég er stödd í nýjum heimi og það er heil þjóð  í óvissuferð sem hún hefur ekki skráð sig í??

Fjallganga

IUrð og grjót,

upp í mót.

Ekkert nema urð og grjót.

Klífa skriður,

skríða kletta.
Velta niður,

vera að detta.

Hrufla sig á hverjum steini,

halda að sárið nái að beini.

Finna hvernig hjartað berst,

holdið merst

og tungan skerst.

Ráma allt í einu í Drottin;

- Elsku Drottinn!

Núna var ég nærri dottinn!

Þér ég lofa því að fara

þvílíkt aldrei framar, bara

ef þú heldur í mig núna!

Öðlast lítinn styrk við trúna.

Vera að missa vit og ráð,

þegar hæsta hjalla er náð.

II

Hreykja sér á hæsta steininn,

hvíla beinin.

Ná í sína nestistösku,

nafn sitt leggja í tóma flösku.

Standa aftur upp og rápa,

glápa.

Rifja upp og reyna að muna

fjallanöfnin:

Náttúruna.

Leita og finna

eitt og eitt.

Landslag yrði

lítilsvirði,

ef það héti ekki neitt.

III

Verða kalt, er kvöldar að.

Halda seint og hægt af stað.

Mjakast eftir mosatónum.

Missa hælinn undan skónum.

Finna sig öllu taki tapa:

Hrapa!

Velta eftir urð og grjóti,

aftur á bak og nið'r í móti.

Leggjast flatur,

líta við.

Horfa beint í hyldýpið.

Hugsa sér

að höndin sleppi.

Hugsa sér

að steinninn skreppi,

vita urðir við sér taka,

heyra í sínum beinum braka.

Deyja áður dagur rynni.

Finnast ekki einu sinni.

IV

Koma heim og heita því,

að leggja aldrei upp á ný.

Dreyma margar næstu nætur

hrap í björgum, brotna fætur.

Segja löngu seinna frá því;

Sjáið tindinn! Þarna fór ég.

Fjöllunum ungum eiða sór ég,

enda gat ei farið hjá því,

að ég kæmist upp á tindinn.

Leiðin er að vísu varla

vogandi, nema hraustum taugum,

en mér fannst bara

best að fara

beint af augum.

Því hversu mjög sem mönnum finnast,

fjöllin há, ber hins að minnast,

sem vitur maður mælti forðum

og mótaði í þessum orðum,

að eiginlega er ekkert bratt,

aðeins mismunandi flatt.

Tómas Guðmundsson


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 23:58:04 / gudnyb

fjölgun í fjölskyldunni

Það er orðið ákveðið að hún LayLow er fiðrildið mitt  ...og nú er bara bið eftir að kynnast henni betur:lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 00:50:23 / gudnyb

...fósturheimili

falleg systkini,sem mig langar að fá en get ekki :
Stelpan sem hefur fengið nafnið LayLow  hefur algerlega heillað mig og ég hreinlega veik að fá hana í varanlegt fóstur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 16:56:58 / gudnyb

Einvera manns - Nærvera Guðs

Einvera gefur tóm til að hugleiða sína eigin tilvist.
Við ljósið erum stundum ein með sjálfum okkur. Við erum að þjóna nýfæddum sálum sem eru ósjálfbjarga, nema einhver komi til og taki þær að sér. Og sem betur fer eru þar engar undantekningar. Nýfædd sál á sér björgunarmenn. Nýfædda sál þyrstir. Þyrstir eftir næringu og nærveru. =>Lífsþorstinn

„Ég hef lært að vera einn.
Ég hef haft fuglana
að fyrirmynd,
þeir eru alltaf í fylgd
með tveimur vængjum

og himinninn yfir þeim.

Þegar þeir eru leiðir
á himninum
setjast þeir á greinar
eða steina,

stundum á niðhvít
vötn,

en ég læt mér nægja
að reika um gamla
kirkjugarðinn

og sleppa hugsunum mínum
að upptökum Nílar.”
(Kvöldganga með fuglum, Reykjavík 2005, bls. 51)

Svo farast skáldinu Matthíasi Johannessen orð í upphafsorðum ljóðs hans, Einvera.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 09:37:32 / gudnyb

góður eða vondur dagur.....hver ræður því?

fallegur vetrarmorgunn.....

 í dag ætla ég að láta liggja vel á mér og hugsa um alla góðu hlutina sem eru í kringum mig......... já velgengni daganna er stundum spurning um ákvörðun

takið ákvörðun og ....njótið dagsins


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 10:08:34 / gudnyb

stíll...

...já ég er eiginlega alveg orðlaus í öllu þessu ati í fjármálaheimilinum....ekki það að ég hafi tapað fleiri milljörðum, en varasjóður ríkisstarfmannsins er horfinn, sem sjálfsagt hefur verið að verðmæti skiptimyntar fyrir útrrásarvíkingana sem voru að búa til peninga í tölvum ...og berast á svo þjóðin fékk glíu í augun...ekki er ég saklaus af þessarri glíutilfinningu yfir því hvernig hægt var að gera bókstaflega allt sem manni gat dottið í hug... kaupa, kaupa skíðabrekkur og fjöll, þotur og þyrlur..fræga skemmtikrafta til að syngja lagstúf á klakanum... já íslenski raunveruleikinn var eins og að skoða glanstímarit þar sem allt var "feikað" og ímyndunarveruleiki almúgans fékk byr og allir vildu vera með í feikinu.... hentu út gömlu drasli og dóti sem hafði jafnvel þjónað þremur kynslóðum... mínimalismi var tískan og ekkert gamalt drasl passar með því... ég er nú reyndar svo klikkuð að gamalt dót hefur alltaf heillað mig og ANTIK er minn stíll ... og stofan mín skartar sófasetti og fleira dóti frá aldamótakynslóðinni... þannig að glíutilfinningin hafði ekki áhrif á minn aldamótastíl.... en lexían er: glanstímaritin eru til að skoða og stytta manni stundir en ekki til að fara inn í þau......!!
...ég er farin að þurrka af gamla dótinu....góða helgi

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 00:14:55 / gudnyb

hvað

...í góðærinu var spurt; ...     "hvað er það sem mig langar"..... nú hefur spurningin breyst í;    "hvað er það sem ég þarf"........ er þetta ekki ágætis burjun

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 23:56:02 / gudnyb

...frum-afl

..ljósið segir stundum við "sínar konur"...      ,,og farðu nú inn á við og hlustaðu á þína frumkonu"...það þýðir að hlusta eingöngu á sinn innri kraft og leyfa því afli sem innra  býr að flæða...og láta ekki ytri áreiti trufla sig ...vera sannur og leggja sjálfa sig í traustan faðm æðri máttar... hvort sem það heitir Guð eða eitthvað annað...

...það getur verið að einhverjum finnist það ábyrgðarleysi að leggja líf sitt og áhyggjur í hendur einhverju almætti sem enginn getur skilgreint á sama hátt.... en það er tilfinning mín að tími þeirra sem trúðu og treystu á eigin getu og afl peninga og efnislegra gæða sé liðinn... nú rennur upp tími nýrra gilda...meira síðar

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 22:43:49 / gudnyb

...komin aftur hingað

...já ég er búin að fá nóg af umræðum moggablogginu... reyndar er ég hundfúl yfir ástandinu í þjóðfélaginu... mér líður pínulítið eins og ég hafi verið í samfélagi með villingum ...að ég og fleiri auðtrúa sakleysingar hafi látið þá plata sig...  stöndum svo eins og aular meðan híað er á okkur... já sakleysingjarnir verða pínu skömmustulegir og vilja ekki viðurkenna að hafa horft með aðdáun á villingana sem fundu upp á nýjum leikjum ...stunduðu sjónhverfingar svo lýðurinn var dolfallinn...
...já sjónhverfingarmenn læddust inn í tölvur sakleysingjanna og þar urðu til tölur sem hækkuðu með ógnarhraða og meðalJóninn taldi sig orðinn eignamann ...já peningarnir urðu til í tölvunni... og lærðir jakkafatadrengir sátu glaseygðir við tölvuskjái daginn út og inn og hagnaður þjóðarinnar náði hæstu hæðum á skjánum og sakleysingjarnir trúðu að það væri kominn ný undistöðu atvinnugrein...enginn vill vinna í fiski og landbúnaður er púkó... en svo sprakk bólan og tölvupeningarnir eyddust út á einni nóttu.... já hurfu bara ...og allt í plati...
góðar stundir

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 35
Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 120139
SPEKI - HORNIÐ
Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur. 
Einar Benediktsson
Dagsetning
9. febrúar 2012